29. ágú. 2022

Fjarlægja skal útilegutæki af bílastæðum skóla

Íbúar sem eiga útilegutæki hafa gjarnan nýtt bílastæði grunnskólanna til að leggja búnaði sínum á meðan þeir eru lokaðir.Nú eru skólar  byrjaðir á ný og því er mikilvægt að allir bílar séu fjarlægðir af bílastæðum skóla.

  • Innritun í grunnskóla
    Innritun í grunnskóla Garðabæjar fer fram dagana 1.-10. mars nk.

Íbúar sem eiga útilegutæki hafa gjarnan nýtt bílastæði grunnskólanna til að leggja búnaði sínum á meðan þeir eru lokaðir. Hér er átt við búnað eins og tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annað tengt sumri og ferðalögum og er í virkri notkun yfir sumartímann. 

Nú eru skólar byrjaðir á ný og því er mikilvægt að allir bílar séu fjarlægðir af bílastæðum skóla.