22. jún. 2023

Fræsun malbiks á Hofsstaðabraut

Á morgun, föstudaginn 23. júní mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á Hofsstaðabraut, milli Karlabrautar og Kirkjulundar.

Á morgun, föstudaginn 23. júní mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á Hofsstaðabraut, milli Karlabrautar og Kirkjulundar.

Byrjað verður um klukkan 9 og unnið fram eftir degi.

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleið um Kirkjulund/Vífilsstaðaveg verður merkt, eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani.

Reynt verður að hleypa íbúum sem búa við lokunina (Hofslund, Hörgslund, Reynilund og Heiðarlund), um svæðið eins og hægt er.