20. jún. 2023

Götulokun: Malbikun á Karlabraut, milli Bæjarbrautar og Hofsstaðabrautar

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleiðir verða merktar.

 

Miðvikudaginn 21. júní mun Loftorka vinna við malbikun á Karlabraut, milli Bæjarbrautar og Hofsstaðabrautar, ef veður leyfir.

Byrjað verður um klukkan 9 og unnið til ca 16.

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleiðir verða merktar, eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani, hér fyrir ofan. 
ATHUGIÐ Dalsbyggð lokast alveg og verður ekki hægt að hleypa íbúum inn/út frá þeirri götu.Íbúar sem búa í öðrum götum á svæðinu, eins og Hæðarbyggð, Búðir, Ásbúð og Holtsbúð komast leiðar sinnar um hjáleið. Hægt verður að leggja ökutækjum sínum í nágrenninu, eins og t.d. við Skólabraut og ganga þaðan