10. nóv. 2021

Heitavatnslaust á Álftanesi

Vegna vinnu við dreifikerfið verður heitavatnslaust á Álftanesi og hluta Garðabæjar fimmtudaginn 11. nóvember kl. 05:00-18:00. Álftaneslaug verður lokuð á meðan.

  • Heitavatnslaust á Álftanesi 11. nóvember frá 05-18
    Heitavatnslaust á Álftanesi 11. nóvember frá 05-18

Vegna vinnu við dreifikerfið verður heitavatnslaust á Álftanesi og hluta Garðabæjar fimmtudaginn 11. nóvember kl. 05:00-18:00. Sjá nánar hér á vef veitna.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.