12. nóv. 2019

Heitavatnslaust á hluta Álftaness í dag þriðjudag

Vegna tenginga nýrrar stofnæðar verður heitavatnslaust á hluta Álftaness í dag þriðjudaginn 12. nóv á milli klukkan 13:20 og 20:00. Vegna þessa verður lokað í sundlauginni á Álftanesi frá 13-20 í dag.

  • Veituframkvæmd - heitavatnslaust - Álftanes 12.11.19
    Veituframkvæmd - heitavatnslaust - Álftanes 12.11.19

Vegna tenginga nýrrar stofnæðar verður heitavatnslaust á hluta Álftaness í dag þriðjudaginn 12. nóv á milli klukkan 13:20 og 20:00. Sjá nánar á korti í tilkynningu á vef Veitna. 

Vegna þessa verður lokað í sundlauginni á Álftanesi frá 13-20 í dag.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.