25. mar. 2021

Kynningarfundur um fyrirhugaða friðlýsingu Skerjafjarðar við Álftanes

Umhverfisstofnun boðar til kynningarfundar um fyrirhugaða friðlýsingu í Skerjafirði við Álftanes.

  • Skerjafjörður við Álftanes
    Skerjafjörður við Álftanes

Umhverfisstofnun, Garðabær, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vinna nú að undirbúningi friðlýsingar í Skerjafirði við Álftanes.

Umhverfisstofnun boðar af því tilefni til kynningarfundar um fyrirhugaða friðlýsingu þann 8. apríl nk. kl. 20:00. Fundurinn verður rafrænn og verður hægt að tengjast honum á vefslóðinni http://ust.is/fundur20210408

Á fundinum mun sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun flytja erindi þar sem fjallað verður um friðlýsingaferlið sjálft, verndargildi og sérstöðu svæðisins og möguleg mörk friðlýsta svæðisins.

Í kjölfar erindisins verður tekið á móti spurningum og umræðum. Fundurinn er öllum opinn og við vonumst til að sjá sem flesta.