26. ágú. 2022

Lokað fyrir kalda vatnið í Urriðaholti

Lokað verður fyrir kalda vatnið vegna vinnu við stofnæð fimmtudaginn 1. september kl. 20 og fram eftir kvöldi.

Lokað verður fyrir kalda vatnið vegna vinnu við stofnæð fimmtudaginn 1. september kl. 20 og fram eftir kvöldi. Vatnslaust verður í hluta Urriðaholts og þrýstingur getur þá fallið annars staðar í Urriðaholti en ekki öðrum hverfum Garðabæjar. Sjá nánar á meðfylgjandi mynd.  Lokað verður fyrir vatnið innan grænu reitanna á myndinni nyrst í hverfinu en það getur haft áhrif á allt Urriðaholtið.