8. jún. 2020

Malbikun á Hnoðraholtsbraut

Þriðjudaginn 9. júní mun Loftorka vinna við malbikun á Hnoðraholtsbraut, frá Vetrarbraut að Bæjargili, ef veður leyfir. 

Þriðjudaginn 9. júní mun Loftorka vinna við malbikun á Hnoðraholtsbraut, frá Vetrarbraut að Bæjargili, ef veður leyfir.
Byrjað verður um klukkan 9 og unnið fram eftir degi.
Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, en hjáleiðir verða merktar.

Vegfarendur sem eiga leið hjá eru beðnir um að virða merkingar og fara varlega.