12. jún. 2023

Malbikun á tveimur stöðum

Á morgun, þriðjudaginn 13.júní mun Loftorka vinna við malbikun á tveimur stöðum í Garðabæ, ef veður leyfir.

Á morgun, þriðjudaginn 13.júní mun Loftorka vinna við malbikun á tveimur stöðum í Garðabæ, ef veður leyfir.

  1. Álftanesvegur, milli Garðavegar og Bessastaðahringtorgs: Byrjað verður um klukkan 9 og unnið fram að hádegi.

Aðeins verður unnið á einni akrein í einu og íbúum því hleypt inn og út af svæðinu, en búast má við einhverjum töfum vegna framkvæmdarinnar.

  1. 17. Júní torg: Byrjað verður um klukkan 11 og unnið fram eftir degi.

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani.