8. sep. 2016

Auglýst eftir umsóknum í þróunarsjóð leikskóla

Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar.

Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi leikskóla í Garðabæ. Einstaka leikskólakennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu og menningarsvið í samstarfi við leikskóla geta sótt um styrk í þróunarsjóð.

Heildarúthlutun ársins er 8 milljónir og þegar hefur verið úthlutað rúmum sex milljónum.

Áhersluþættir þróunarsjóðs leikskóla veturinn 2016-2017.

  1. Læsi
  2. Lýðræði og mannréttindi
  3. Samskipta- og félagsfærni
  4. Hreyfing og velferð
  5. Sjálfbærni
  6. Samvinna innan og á milli skóla og skólastiga.

Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. október og verður þeim svarað fyrir 31. október.

Frekari upplýsingar veitir:

Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs 
sími: 5258500

 Reglur þróunarsjóðs og umsóknareyðublöð eru á vef Garðabæjar