Snyrtilegar lóðir - auglýsing um ábendingar
Umhverfisnefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2016. Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði og snyrtilega götu.
Umhverfisnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.
Umhverfisnefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2016. Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði og snyrtilega götu.
Hægt er að skila ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, sími: 525 8500 eða til umhverfisstjóra í netfangið: erlabil@gardabaer.is fyrir 10. júlí nk.
Umhverfisnefnd