Útboð - vetrarþjónusta gatna 2016-2019
Garðabær óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ 2016-2019.
ÚTBOÐ
Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2016-2019
Garðabær óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ 2016-2019.
Í verkinu felst snjóruðningur og hálkuvörn á stofn-, tengi- og safngötum í Garðabæ.
Helstu magntölur forgangsgatna eru:
Götur í fyrsta forgangi: 15 km
Götur í öðrum forgangi: 45 km
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 21. júní nk. í afgreiðslu Mannvits, Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi.
Opnun tilboða:
Þriðjudaginn 5. júlí 2016 kl. 11:00, hjá Mannviti í Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi.
Auglýsing (birtist í Fréttablaðinu 18. júní 2016)