16. jún. 2016

Malbikun á hringtorgi á Arnarnesvegi 16. júní

Fimmtudaginn 16. júní er stefnt að því að malbika hringtorg á Arnarnesvegi, yfir Reykjanesbraut.

Fimmtudaginn 16. júní er stefnt að því að malbika hringtorg á Arnarnesvegi, yfir Reykjanesbraut. Vinnusvæði verður lokað og merkt samkvæmt viðhengdu lokunarplani meðan á framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmd standi yfir frá 09:00 til 18:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.