Kjörskrá vegna forsetakosninga
KJÖRSKRÁ GARÐABÆJAR
Kjörskrá vegna kosninga til embættis forseta Íslands sem fram eiga að fara laugardaginn 25. júní 2016 mun liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg, frá og með miðvikudeginum 15. júní 2016 til kjördags.
Á kjörskrá eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í Garðabæ samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár Íslands 4. júní 2016 og fæddir eru 25. júní 1998 og fyrr (18 ára þegar kosning fer fram).
Íslenskir ríkisborgarar, sem átt hafa lögheimili hér á landi eiga kosningarrétt í átta ár frá því að þeir fluttu lögheimili sitt af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. (1. desember 2007).
Íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2007, eru ekki á kjörskrá við þessar kosningar nema þeir hafi sótt um það til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2015.
Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt og eru því ekki á kjörskrá.
Á vefsíðu Þjóðskrár, www.skra.is, er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvort aðilar eru á kjörskrá eða ekki.
Athugasemdir við kjörskrá skulu berast bæjarstjórn, en leiðréttingar á kjörskrá má gera til kjördags.
Bæjarritari