3. jún. 2016

Lokanir á umferð 4. júní vegna Kvennahlaupsins

Vegna Kvennahlaupsins laugardaginn 4. júní 2016 verður Vífilsstaðavegur lokaður frá hringtorgi (austan) við Vífilsstaði að Bæjarbraut/Stekkjarflöt milli kl. 13:45 – 16:00

Vegna Kvennahlaupsins laugardaginn 4. júní 2016 verður Vífilsstaðavegur  lokaður frá hringtorgi (austan) við Vífilsstaði að Bæjarbraut/Stekkjarflöt milli kl. 13:45 – 16:00. Vífilsstaðavegur frá Bæjarbraut að Hafnarfjarðavegi verður lokaður í hálftíma frá 13:45 – 14:15.

Umferð eftir Reykjanesbraut (norður / suður) kemst ekki upp á hringtorgin við Vífilsstaði á tímabilinu 14:00 – 16:00.

Það má búast við að íbúar í eftirtöldum hverfum verði fyrir einhverjum óþægindum og töfum á meðan á hlaupi stendur.  Umferð um hverfi verður stýrð og íbúar eru beðnir um að sýna þolinmæði í umferðinni á meðan viðburðurinn fer fram.

1. Sjálandi (frá kl. 14:00 – 14:30)
2. Flatirnar
3. Lundirnar
4. Byggðirnar
5. Mýrin
6. Hæðirnar
7. Gilin
8. Búðirnar
9. Hnoðraholtið

 Sjá nánari upplýsingar um hlaupið hér á vef Garðabæjar.

Kvennahlaupið 2016 - hlaupaleiðir