13. maí 2016

Útboð - göngu- og hjólastígur sunnan Vífilsstaða

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið “Göngu- og hjólastígur sunnan Vífilsstaða”.

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið “Göngu- og hjólastígur sunnan Vífilsstaða”.

Verkið felst í að koma fyrir undirbyggingu fyrir göngu- og hjólastíg á milli undirganga við Reykjanesbraut og Elliðavatnsvegar, uppsetningu ljósastólpa og lagningu rafstrengja.

Helstu magntölur eru:

Burðarlög: 2.200 m3
Holræsalagnir: 15 m
Ljósastólpar: 22 stk.
Ljósastrengir: 880 m

Lokaskiladagur verksins er 1. september 2016.

Tilboð skal skila í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, Garðabæ, eigi síðar en fimmtudaginn 2. júní 2016 kl. 11:30, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Auglýsing og útboðsgögn