Útboð - endurnýjun knattspyrnugrass
Garðabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði vegna endurnýjunar á knattspyrnugrasi þriggja valla á íþróttasvæði Stjörnunnar í Ásgarði,
Garðabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í opnu útboði vegna endurnýjunar á knattspyrnugrasi þriggja valla á íþróttasvæði Stjörnunnar í Ásgarði, tveggja sparkvalla og eins æfingavallar.
Lýsing á útboði:
- Útvegun og fullnaðarfrágangur knattspyrnugrass með nýju fjaðurlagi (púða) á minni æfingavöll Stjörnunnar í Ásgarði og tvo sparkvelli á sama svæði.
- Rif og förgun á núverandi yfirborði æfingavallar og sparkvallanna tveggja.
Helstu kennitölur eru:
Knattspyrnugras með nýjum púða og rif og förgun á núverandi yfirborði
- Flatarmál æfingavallar, 51x63m: 3213m2
- Flatarmál tveggja sparkvalla, 2x18x33m: 1188m2
Upphaf verks er 2. ágúst 2016. Fullbúnum æfingavelli skal skila eigi síðar en 31. ágúst. Heildarverki skal að fullu lokið eigi síðar en 16. september 2016.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is
Tilboð skulu berast VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, fyrir kl. 11 föstudaginn 27. maí 2016, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.