6. maí 2016

Útboð - færsla á innkeyrslu við Garðatorg

Garðabær óskar eftir tilboðum í færslu á innkeyrslu við Garðatorg frá Vífilsstaðavegi.

Garðabær óskar eftir tilboðum í færslu á innkeyrslu við Garðatorg frá Vífilsstaðavegi.

Helstu verkþættir eru upprif á núverandi yfirborði, færslu á lögnum Mílu og regnvatns, leggja snjóbræðslulagnir, malbikun og hellulögn.

Útboðsgögn verða aðgengileg á vef Garðabæjar frá og með þriðjudeginum 10. maí 2016, kl. 13:00.

Tilboðum skal skila í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 24. maí 2016.

Tilboð verða opnuð 24. maí 2016 kl. 11:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verklok eru 20. júlí 2016.

Helstu magntölur eru:
- Upprif malbik, hellur og steypa 800 m2
- Upprif regnvatnslagnir 100 m
- Uppúrtekt 750 m3
- Fyllingar og burðarlög 630 m3
- Regnvatnslagnir 120 m
- Snjóbræðslulagnir 1200 m
- Malbikun 185 m2
- Hellulögn 635 m2
- Forsteyptur kantsteinn 130 m
- Þökulagnir 100 m2

Auglýsing og útboðsgögn