6. maí 2016

Útboð - Brekkuskógar 1, bílastæði

Garðabær óskar eftir tilboðum í nýtt bílastæði við Brekkuskóga 1 á Álftanesi.

Garðabær óskar eftir tilboðum í nýtt bílastæði við Brekkuskóga 1 á Álftanesi.

Helstu verkþættir eru uppúrtekt, fyllingar, regnvatnslagnir, kantsteinar og þökulögn.

Útboðsgögn verða aðgengileg á vef Garðabæjar frá og með þriðjudeginum 10. maí 2016, kl. 13:00.

Tilboðum skal skila í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, fyrir kl. 11:00, fimmtudaginn 19. maí 2016.

Tilboð verða opnuð 19. maí 2016 kl. 11:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verklok eru 7. júlí 2016.

Helstu magntölur eru:
- Uppúrtekt 675 m3
- Fyllingar 500 m3
- Regnvatnslagnir 35 m
- Kantsteinar 110 m
- Þökulögn 175 m2

Auglýsing og útboðsgögn