28. apr. 2016

Auglýsing um deiliskipulagsbreytingar í Garðabæ

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á tillögum að breytingum eftirfarandi deiliskipulagsáætlana í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á tillögum að breytingum eftirfarandi deiliskipulagsáætlana í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

1. Víkurgata 4 og 13, Keldugata 2. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.

Tillagan gerir ráð fyrri því að byggingareitum á lóðunum verði stækkaður til þess að meira svigrúm sé til þess að staðsetja byggingar á lóð með tilliti til jarðsprungu sem liggur um lóðirnar.

2. Mosagata 2. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða verði 5 í stað 3. Á vesturhluta lóðar verði komið fyrir 5 bílastæðum með aðkomu frá Mosagötu

3. Kinnargata 19-25. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.


Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða verði 5 í stað 4. Bílastæði bætist við á lóð.

4. Holtsvegur 45-47. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða verði 10 í stað 9 í hvoru húsi. Bílastæði bætast við á lóð.

5. Brekkugata 1-3. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 2.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða verði 25 í stað 22. Bílastæði bætast við á lóð.

6. Dyngjugata 1-3. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 2.

Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum á lóðinni fjölgi um 2 úr 16 í 18. Bílastæði bætast við á lóð og í bílageymslu.

Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 2. maí 2016 til og með 13. júní 2016. Þær eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 13.júní 2016.

Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.


Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar

 

Deiliskipulagsbreyting Víkurgata 4 og 13, Keldugata 1

Deiliskipulagsbreyting Mosagata 2

Deiliskipulagsbreyting Kinnargata 19 - 25

Deiliskipulagsbreyting Holtsvegur 45 -47

Deiliskipulagsbreyting Brekkugata 1 -3

Deiliskipulagsbreyting Dyngjugata 1 - 3