22. apr. 2016

19. júní sjóður Garðabæjar

Íþrótta og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum í 19. júní sjóð Garðabæjar. „Tilgangur sjóðsins er að styrkja og efla íþróttir kvenna í Garðabæ með því að veita fé til uppbyggingar á því sviði“

19. júní sjóður Garðabæjar

Íþrótta og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum í 19. júní sjóð Garðabæjar.

„Tilgangur sjóðsins er að styrkja og efla íþróttir kvenna í Garðabæ með því að veita fé til uppbyggingar á því sviði“ (skipulagsskrá sjóðsins).

Umsóknarfrestur er til 13. maí 2016
Sótt er um á íbúavefnum Mínum Garðabæ.

Minn Garðabær > Umsóknir > Umsókn fyrir 19. júnísjóð

Gefa þarf upp:
1. Umsækjandi: íþróttafélag/stofnun/einstaklingur
2. Ábyrgðaraðili: einstaklingur sem er í forsvari fyrir viðkomandi verkefni
3. Lýsing: Markmið verkefnisins og rökstuðningur
4. Tímabil: nákvæm útlistun á dagsetningum við upphaf og lok verkefnis
5. Starfsmenn: upptalning á starfsmönnum og hlutverki hvers og eins
6. Framkvæmda og kostnaðaráætlun: hvernig verkefnið er framkvæmt og kostnaðarskipting í verkefninu

Upplýsingar veitir Kári Jónsson íþróttafulltrúi Garðabæjar í netfangi karijo@gardabaer.is.