20. apr. 2016

Auglýsing um samþykkt breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2004 - 2016. Kauptún

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl síðastliðinn breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2004 - 2016 sem nær til verslunar-og þjónusutsvæðis í Kauptúni í samræmi við 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýst breytingartillaga var samþykkt óbreytt.
Á sama fundi var samþykkt breyting á deiliskipulagi Kauptúns með smávægilegum breytingum í kjölfar athugasemda og breyting á deiliskipulagi Urriðaholts - Viðskiptastrætis óbreytt frá auglýstri tillögu.
Í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða sveitarstjórnar hér með auglýst.

Garðabæ 20. apríl 2016

Skipulagsstjóri Garðabæjar