Urriðaholt, Norðurhluti 3. áfangi. Forkynning deiliskipulagstillögu
Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur vísað tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3. áfanga til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið, sem nær til 9 ha svæðis við Urriðaholtsstræti og hæsta hluta holtsins, gerir ráð fyrir að hámarki 327 íbúðum í fjölbýli (3-5 hæðir) og rað- og parhúsum (1-2 hæðir), af mismundandi stærð í blandaðir byggð sem getur hentað fyrir alla aldurshópa. Við Urriðaholtsstræti verð fjölbýlishús með atvinnutengdri starfsemi á neðstu hæð sem snýr að götunni.
Forkynning stendur til 11. apríl 2016. Meðan á forkynningu stendur er tillagan aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar, www.gardabaer.is og á heimasíðu Urriðaholts, www.urridaholt.is . Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á því að koma með ábendingar sem verða teknar til umfjöllunar við endanlega mótun tillögunnar. Skal þeim skilað skriflega til skipulagstjóra Garðabæjar fyrir 11. apríl.
Almennur kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 30. mars á bæjarskrifstofum Garðabæjar, 3. hæð og hefst hann klukkan 16.
Á fundinum verður tillagan kynnt, spurningum svarað og opnað fyrir umræður.
Skipulagsstjóri Garðabæjar
Deiliskipulag Norðurhluti 3, Urriðaholt - Tillaga
Uppdráttur Norðurhluti 3, Urriðaholt - Tillaga
Skýringaruppdráttur Norðurhluti 3, Urriðaholt - Tillaga
Jarðsprungur Norðurhluti 3, Urriðaholt - Tillaga
Snið Norðurhluti 3, Urriðaholt - Tillaga
Deiliskipulagsyfirlit Norðurhluti 3, Urriðaholt - Tillaga