Opið fyrir umsóknir í þróunarsjóð leikskóla
Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar.
Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi leikskóla í Garðabæ. Einstaka leikskólakennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu og menningarsvið í samstarfi við leikskóla geta sótt um styrk í þróunarsjóð. Sjóðurinn hefur heimild til að úthluta 8 milljónum króna árið 2016.
Áhersluþættir þróunarsjóðs leikskóla veturinn 2016-2017.
- Læsi
- Lýðræði og mannréttindi
- Samskipta- og félagsfærni
- Hreyfing og velferð
- Sjálfbærni
- Samvinna innan og á milli skóla og skólastiga.
Umsóknir skal senda til Fræðslu- og menningarsviðs merktar Þróunarsjóði leikskóla í Garðabæ eða á netfangið: leikskolanefnd@gardabaer.is.
Skulu þær hafa borist fyrir 1. apríl og verður þeim svarað fyrir 30. apríl.
Frekari upplýsingar veitir:
Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
sími: 5258500.
Umsóknareyðublöð eru á vef Garðabæjar