12. feb. 2016

Lóð fyrir veitingahús við Arnarnesvog

Garðabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að byggja og starfrækja veitingahús á lóð við Arnarnesvog

Garðabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að byggja og starfrækja veitingahús á lóð við Arnarnesvog. Lóðin er við Ránargrund og er 4086 fm að stærð. Heimilt er að byggja á henni veitingahús sem er allt að 500 fm að stærð.

Lóðin er á góðum útsýnisstað við Arnarnesvog.

Umsóknum skal skilað til þjónustuvers Garðabæjar í Ráðhúsinu, Garðatorgi 7 í síðasta lagi kl. 14:00 mánudaginn 29. febrúar 2016.

Auglýsing um lóðina með nánari upplýsingum.

Skipulagsuppdráttur

Umsóknareyðublað