7. jan. 2016

Húsaleigubætur 2016

Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsóknir um húsaleigubætur (almennar og sérstakar) árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka. Umsóknir fyrir árið 2016 ásamt fylgigögnum, skulu berast Garðabæ í síðasta lagi 16. janúar nk.

Umsókn um húsaleigubætur skal hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Ef umsókn berst seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar.

Rafrænar umsóknir um húsaleigubætur eru á íbúavefnum Mínum Garðabæ.

Nánari upplýsingar um húsaleigubætur eru hér á vef Garðabæjar.