Auglýst eftir umsóknum í Þróunarsjóð grunnskóla
Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar ársins úr Þróunarsjóði grunnskóla. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi skóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu og menningarsvið í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í þróunarsjóð
Áhersluþættir þróunarsjóðs grunnskóla
Heildarúthlutun ársins er 25 milljónir og þegar hefur verið úthlutað tæpum 20 milljónum. Áhersla skólanefndar árið 2015 er á eftirfarandi fimm megin þætti:
1. Efla læsi og lesskilning og nýta mælikvarða á sviðinu.
2. Fjölbreyttir og einstaklingsmiðaðir kennsluhættir sem mæta ólíkum námsþörfum nemenda og efla virkni þeirra í náminu.
3. Samvinna innan og á milli skóla og skólastiga sem eykur samfellu í námi, eflir námsframboð og samvinnu fagaðila í þróunarstarfi.
4. Félagsfærni og samskiptahæfni, vellíðan stúlkna og drengja í skóla, vinna gegn einelti.
5. Innra mat skóla.
Eyðublað til að sækja um styrk í sjóðinn
Eyðublað í word
Umsóknir skal senda til Fræðslu- og menningarsviðs merktar Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ eða á netfangið skolanefnd@gardabaer.is
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 15. september og verður þeim svarað fyrir 1. október.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Björk Svavarsdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, margretsv@gardabaer.is