2. sep. 2015

Auglýst eftir umsóknum í þróunarsjóð leikskóla

Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar ársins úr þróunarsjóði leikskóla

Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar ársins úr þróunarsjóði leikskóla. Þróunarsjóðunum er ætlað að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi leikskóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu og menningarsvið í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í þróunarsjóðina.

Áhersluþættir Þróunarsjóðs leikskóla

Heildarúthlutun ársins er 8 milljónir og þefar hefur verið úthlutað rúmum sex milljónum. Áhersla leikskólanefndar árið 2015 er á eftirfarandi sex megin þætti:

• Hreyfing og velferð
• Lýðræði og mannréttindi
• Samskipta- og félagsfærni
• Sjálfbærni
• Málörvun og læsi
• Samvinna innan og á milli skóla og skólastig

Eyðublað til að sækja um styrk úr sjóðnum.

Eyðublað í word

Umsóknir skal senda á þar til gerðu eyðublaði til fræðslu- og menningarsviðs merktar Þróunarsjóði leikskóla í Garðabæ eða á netfangið leikskólanefnd@gardabaer.is

Umsóknir skulu hafa borist fyrir 15. september og verður þeim svarað fyrir 15. október.

Frekari upplýsingar veitir Margrét Björk Svavarsdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, margretsv@gardabaer.is