Vetraráætlun Strætó
Vetraráætlun Strætó tekur gildi eftirtalda daga:
· Höfuðborgarsvæðið 16. ágúst
· Suðurnes 16. ágúst
· Norður og Norðausturland 30. ágúst
· Suðurland 13. september
· Vestur- og Norðurland 13. september
Þann 16. ágúst 2015 mun ný vetraráætlun taka gildi á höfuðborgarsvæðinu. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
· Leiðir 2, 5, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 24, 28, 35 fara yfir á korters tíðni á annatíma.
· Leið 1 - Fastur aukavagn verður kl. 7:50 frá Firði að Hlemmi á virkum dögum.
· Aukavagnar á leiðum 1 og 6 seinnipartinn á virkum dögum munu hefja ferð sína einu stoppi fyrr, eða hjá Ráðhúsinu áður en þeir fara í HÍ.
· Leið 15 - Biðstöðin við Reykjaveg í Mosfellsbæ mun færast við endann á Reykjaveginum.
Nánari upplýsingar má finna á www.straeto.is