Lokað í sundlaug Garðabæjar
Lokað verður í sundlaug Garðabæjar í Ásgarði fram til laugardagsins 6. júní vegna viðgerða.
Lokað verður í sundlaug Garðabæjar í Ásgarði vegna hreinsunar og viðgerða frá 1.-5. júní. Sundlaugin opnar aftur kl. 8:00 laugardaginn 6. júní. Beðist er velvirðingar á þeirri röskun sem þessi lokun mun valda.