Bæjarlistamaður Garðabæjar 2015 - ósk um ábendingar
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum eða samtökum listamanna um útnefningu bæjarlistamanns Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum eða samtökum listamanna um útnefningu bæjarlistamanns Garðabæjar. Óskað er eftir ábendingum til og með 4. maí 2015 (framlengdur frestur).
Ábending um bæjarlistamann Garðabæjar 2015 (word-skjal)
Fylla má út eyðublaðið hér fyrir ofan og senda rafrænt á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is eða skriflega á Bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7.
Einnig má senda ábendingar rafrænt í t-pósti til Huldu Hauksdóttur upplýsinga- og menningarfulltrúa, hulda@gardabaer.is
Tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni við sérstaka athöfn 28. maí nk. Nánari upplýsingar og reglur má sjá hér.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar