19. mar. 2015

Bæjarlistamaður Garðabæjar - ósk um ábendingar

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum eða samtökum listamanna um útnefningu bæjarlistamanns Garðabæjar. Óskað er eftir ábendingum í síðasta lagi 17. apríl 2015.

Ábending um bæjarlistamann 2015

Fylla má út eyðublaðið hér fyrir ofan og senda rafrænt á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is  eða skriflega á Bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7.   

Einnig má senda ábendingar rafrænt í t-pósti til Huldu Hauksdóttur upplýsinga- og menningarfulltrúa, hulda@gardabaer.is

Tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni við sérstaka athöfn 28. maí nk.  Nánari upplýsingar og reglur má sjá hér. 
   
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

Auglýsing um bæjarlistamann (pdf-skjal)