4. mar. 2015

Kynningar á grunnskólum í Garðabæ

Yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar haustið 2015
Hver skóli verður með stutta kynningu í húsnæði skólans og síðan verður foreldrum boðið að ganga um skólann undir leiðsögn starfsmanna og/eða nemenda.

Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Kynningar verða sem hér segir:

ÁLFTANESSKÓLI:

Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2015 fimmtudaginn 12 mars kl. 17:30
Kynningarfundur verður á sal skólans Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og Frístund/tómstundaheimilið í fylgd starfsmanna. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Álftanesskóla er 540-4700
Veffang Álftanesskóla er: www.alftanesskoli.is  

FLATASKÓLI:

Flataskóli býður börnum sem hefja nám í 1. bekk næsta haust og foreldrum þeirra fimmtudaginn 5. mars kl. 17.30. Á sama tíma er einnig kynning fyrir foreldra og börn sem vilja kynna sér starf skólans fyrir fjögurra og fimm ára gömul börn. Gestum er boðið á stutta kynningu á fjölbreyttri starfsemi Flataskóla. Starfsmenn sýna skólahúsið og þá aðstöðu sem það býður upp á. Kennarar, námsráðgjafi og stjórnendur skólans verða til viðtals þennan dag. Foreldrar eru einnig velkomnir á öðrum tímum en gott er að hafa samband við skrifstofu skólans áður.
Sími skrifstofu Flataskóla er 565-8560
Veffang Flataskóla er www.flataskoli.is  


GARÐASKÓLI:

Kynningarfundur fyrir nemendur og foreldra verður haldinn miðvikudaginn 18. mars kl. 17:30 á sal skólans. Sagt verður frá helstu þáttum í starfi skólans og gestum síðan boðið að skoða skólann í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Garðaskóla er 590-2500
Veffang Garðaskóla www.gardaskoli.is  

HOFSSTAÐASKÓLI:

Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2015 verður haldinn í skólanum miðvikudaginn 11. mars nk. kl. 17.30-18.30.
Nemendur og starfsmenn kynna skólann og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Regnbogann í fylgd nemenda og starfsmanna. Foreldrar annarra nýnema eru velkomnir á kynninguna.
Foreldrar eru einnig velkomnir á öðrum tímum og hafa þá samband við skrifstofu skólans áður.
Sími skrifstofu Hofsstaðaskóla er 565-7033.
Veffang Hofsstaðaskóla er www.hofsstadaskoli.is   


SJÁLANDSSKÓLI:

Kynningarfundir fyrir foreldra væntanlegra 1. og 8. bekkinga verður haldinn í skólanum þriðjudaginn 17. mars - ATH kynningin átti að vera 10. mars en var frestað vegna veðurs.
Kynning fyrir 1. bekk og yngra stig verður haldin kl. 16:30 og fyrir unglingastig kl. 17.30. Að loknum kynningum verður gestum boðið að skoða skólann, félagsmiðstöðina Klakann (unglingastig) og tómstundaheimilið Sælukot (yngsta stig) í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Sjálandsskóla er 590-3100.
Veffang Sjálandsskóla er www.sjalandsskoli.is  


BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR:

Kynningarfundur fyrir börn sem heftja nám á 6 ára kjarna næsta haust og fjölskyldur þeirra, verður haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 17:30 á sal skólans. Kynning verður á skólastarfinu og skólahúsnæði verður til sýnis. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Barnaskóla Hjallastefnunnar er 555-7710.
Veffang Barnaskóla Hjallastefnunnar er www.hjalli.is/barnaskolinn

ALÞJÓÐASKÓLINN (International School of Iceland):

Foreldrar og forráðamenn eru ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
Sími skrifstofu Alþjóðaskólans (International School of Iceland) er 590-3106 eða 690-3100
Veffang Alþjóðaskólans (International School of Iceland) er www.internationalschool.is