19. nóv. 2014

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Sveitarfélagið Garðabær vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

Skv. lögum og reglum sveitarfélagsins er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaðiásamt greinargerð til Garðabæjar. Þar má einnig nálgast allar nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2014.

Fjölskyldusvið Garðabæjar
Garðatorgi 7
Garðabæ