Tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar, forkynning
FORKYNNING
Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123 2010 auglýsir Garðabær hér með forkynningu á tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar. Svæðið sem skipulagið nær til eru göturnar Ásbúð og Holtsbúð. Við gerð tillögunnar hefur verið leitast við að viðhalda þeim ákvæðum sem voru hluti af upphaflegu skipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar en auk þess eru nú sett ákvæði um nýtingarhlutfall íbúðarhúsa og breytta aðkomu og landnotkun á lóðinni Holtsbúð 87 (fyrrum hjúkrunarheimili).
Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð.
Forkynning stendur yfir til 1. desember 2014.
Kynningarfundur verður haldinn í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi 11, mánudaginn
10. nóvember klukkan 17:15.
Þar verður tillagan kynnt og fyrirspurnum svarað.
Á meðan á forkynningu stendur er hægt að koma ábendingum til skipulagsstjóra sem einnig mun svara fyrirspurnum um útfærslu tillögunnar. Öllum ábendingum verður komið á framfæri við skipulagsnefnd og bæjarstjórn, en vakin er athygli á því að þær teljast ekki formlegar athugasemdir. Að lokinni forkynningu verður tillagan lögð fram í skipulagsnefnd og vísað þaðan til afgreiðslu bæjarstjórnar. Þegar bæjarstjórn hefur samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi verður það gert með áberandi hætti og gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan athugasemdafrests.
Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar til 1. desember 2014.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar.
Ásbúð og Holtsbúð deiliskipulags uppdráttur, forkynning
Ásbúð og Holtsbúð deiliskipulags greinargerð, forkynning