26. sep. 2014

Tillaga að endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu

Tillaga að endurskoðun vatnsverndar innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkur, Seltjarnarness, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar liggur nú fyrir. Sveitarfélögin ásamt heilbrigðisnefndum Kjósarsvæðis, Reykjavíkur og Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis auglýsa hana til kynningar og athugasemda.

Eftirfarandi málsgögn eru aðgengileg á vef SSH, www.ssh.is/til-kynningar/vatnsvernd
• Tillaga að afmörkun verndarsvæða vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkur, Seltjarnarness, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
• Tillaga að samþykkt um verndarsvæða vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkur, Seltjarnarness, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
• Greinargerð um heildarendurskoðun.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 10. nóvember 2014. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, til skrifstofu SSH.  Skila skal skriflegum athugasemdum á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netfangið ssh@ssh.is

Samtök Sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Hamraborg 9
200 Kópavogi