16. apr. 2014

Framboðsfrestur rennur út 10. maí

Framboðsfrestur til bæjarstjórnarkosninga í Garðabæ, er fram eiga að fara laugardaginn 31. maí 2014, rennur út kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 10. maí 2014.
Framboðsfrestur til bæjarstjórnarkosninga í Garðabæ, er fram eiga að fara laugardaginn 31. maí 2014, rennur út kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 10. maí 2014.

Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum föstudaginn 9. maí nk. kl. 13:00-14:00 og laugardaginn 10. maí nk. kl. 11:00 - 12:00 á bæjarskrifstofum Garðabæjar, við Garðatorg.

Í samþykktum um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 kemur fram að bæjarstjórn Garðabæjar skuli skipuð ellefu fulltrúum frá og með bæjarstjórnarkosningum í maí 2014.

Á framboðslista þurfa því að vera að minnsta kosti 11 nöfn og að hámarki 22 nöfn. Enginn má bjóða sig fram á nema einum lista.

Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann.

Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum i Garðabæ. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista. Meðmælendur þurfa að vera að lágmarki 80 en að hámarki 160.

Varðandi nánari skilyrði og fyrirmæli um framboð er vísað til VI. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. 
 
Garðabæ, 14. apríl 2014

Yfirkjörstjórn Garðabæjar

Árni Ólafur Lárusson
Þóra Margrét Hjaltested
Bergþóra Sigmundsdóttir
Soffía Eydís Björgvinsdóttir
Örn Arnarson