10. mar. 2014

Kynningar í grunnskólum

Yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar haust 2014
Hver skóli verður með stutta kynningu í húsnæði skólans og síðan verður foreldrum boðið að ganga um skólann undir leiðsögn starfsmanna og/eða nemenda. Börnin eru velkomin með.

Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólana og starf þeirra.

Kynningar verða sem hér segir:

ÁLFTANESSKÓLI:
Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2014
miðvikudaginn 12. mars kl. 17:30 – 18:30
Kynningarfundur verður á sal skólans Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og Frístund/tómstundaheimilið í fylgd starfsmanna. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Álftanesskóla er 540-4700
Veffang Álftanesskóla er: www.alftanesskoli.is  

FLATASKÓLI:
Flataskóli býður börnum sem hefja nám í 1. bekk næsta haust og foreldrum þeirra í heimsókn þriðjudaginn 11. mars kl. 17.30.
Gestum er boðið á stutta kynningu á fjölbreyttri starfsemi Flataskóla. Starfsmenn, nemendur og foreldrar sýna skólahúsið og þá aðstöðu sem það býður upp á. Kennarar, nemendur, námsráðgjafi og stjórnendur skólans verða til viðtals þennan dag.
Foreldrar eru einnig velkomnir á öðrum tímum en gott er að hafa samband við skrifstofu skólans áður.
Sími skrifstofu Flataskóla er 565-8560
Veffang Flataskóla er www.flataskoli.is  


GARÐASKÓLI:
Kynningarfundur fyrir nemendur og foreldra verður haldinn þriðjudaginn 18. mars kl. 17:30 í stofu 301. Sagt verður frá helstu þáttum í starfi skólans og gestum boðið að skoða hann í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Garðaskóla er 590-2500.
Veffang Garðaskóla www.gardaskoli.is

HOFSSTAÐASKÓLI:
Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2013
Kynningarfundur verður í hátíðarsal skólans fimmtudaginn 20. mars kl. 17:30. Nemendur, starfsmenn og foreldrar kynna skólann og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið í fylgd starfsmanna og nemenda. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
Sími skrifstofu Hofsstaðaskóla er 565-7033.
Veffang Hofsstaðaskóla er www.hofsstadaskoli.is  

SJÁLANDSSKÓLI:
Kynningarfundir fyrir foreldra væntanlegra 1. og 8. bekkinga verður haldinn í skólanum miðvikudaginn 19. mars.
Kynning fyrir 1. bekk og yngra stig verður haldin kl. 16:30 og fyrir unglingastig kl. 17.30. Að loknum kynningum verður gestum boðið að skoða skólann, félagsmiðstöðina Klakann (unglingastig) og tómstundaheimilið Sælukot (yngsta stig) í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.

Sími skrifstofu Sjálandsskóla er 590-3100.
Veffang Sjálandsskóla er www.sjalandsskoli.is  


BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR:
Opið hús verður í Barnaskólanum, Vífilsstöðum þriðjudaginn 18. mars kl. 16:30.
Foreldrar eru þó ávallt velkomnir í heimsókn í skólann þegar þeim hentar, gott er að hafa samband á undan.
Sími skrifstofu Barnaskóla Hjallastefnunnar er 555-7710.
Veffang Barnaskóla Hjallastefnunnar er www.hjalli.is/barnaskolinn/  

ALÞJÓÐASKÓLINN (International School of Iceland)
:
Foreldrar og forráðamenn eru ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
Sími skrifstofu Alþjóðaskólans (International School of Iceland) er 590-3106.
Veffang Alþjóðaskólans (International School of Iceland) er www.internationalschool.is/