Auglýsing um afreksstyrki
Íþrótta og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum frá íþróttafélögum um afreksstyrki fyrir einstaklinga og hópa skv. afreksstefnu ÍTG grein 3.3 á vef bæjarins.
Íþróttafélög geta sótt um styrki til ÍTG vegna afreka sinna íþróttamanna í samræmi við 2. grein stefnu þessarar. Einungis íþróttagreinar sem viðurkenndar eru af ÍSÍ koma til greina við úthlutun styrkja.
Þeir aðilar, einstaklingar eða lið, sem til greina koma vegna styrkveitinga eru:
a. Þeir sem stunda íþróttir með íþróttafélagi í Garðabæ.
b. Þeir sem eiga lögheimili í Garðabæ og stunda íþróttir með íþróttafélagi utan Garðabæjar, enda er viðkomandi íþróttagrein ekki stunduð í Garðabæ.
Allir íþróttamenn sem þiggja styrk skulu hlíta þeim reglum sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur um lyfjanotkun og lyfjaeftirlit svo og þeim almennu siða- og agareglum sem gilda um framkomu íþróttamanna innan vallar sem utan. Viðkomandi íþróttamenn skulu jafnframt koma fram í skólum og hjá félögum í bænum sé þess óskað af hálfu ÍTG.
Umsóknir um styrki samkvæmt grein 3.3 skulu berast til íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar fyrir 1. febrúar ár hvert á þar til gerðum eyðublöðum. Með öllum umsóknum skal leggja fram afreksstefnu viðkomandi félags.
Umsóknir berist á „minn Garðabær“. Upplýsingar veitir karijo@gardabaer.is
Virðingarfyllst / Regards
Kári Jónsson
Íþróttafulltrúi Garðabæjar /Director of Sport activities
GSM/Mobil: +820 8548