15. nóv. 2013

Þátttaka í jóla- og góðgerðardegi á Álftanesi

Hinn árlegi Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi verður haldinn laugardaginn 30. nóvember. Félagasamtök og einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í deginum með söluvarning eða öðru geta haft samband við

Hinn árlegi Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi verður haldinn laugardaginn 30. nóvember í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi frá kl. 12-16.  Þetta er í fimmta sinn sem Jóla- og góðgerðardagurinn er haldinn en þennan sama dag kl. 16:15 verða ljósin tendruð á jólatréfnu á Álftanesi við hátíðlega athöfn.

Nánari dagskrá verður birt síðar.

Félagasamtök og einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í deginum með söluvarning eða öðru geta haft samband við Auði S. Arndal (s. 891 8785) eða Elínu Jóhannsdóttur (s. 692 0724) eða sent tölvupóst á netfangið godgerdadagur@gmail.com

Vinsamlegast takið fram við pöntun:

  • Nafn félagasamtaka/einstaklings
  • Nafn og símanúmer tengiliðs
  • Fjöldi borða (hvert borð er 75 cm x 3 m)
  • Aðrar upplýsingar ef einhverjar eru (dæmi: þarf að komast í rafmagn, fá stól eða annað)

Hvert söluborð kostar 3000 kr. Staðfesta þarf pöntun með því að leggja inn á sérstakan reikning Foreldrafélagsins vegan dagsins sem er 0140-26-540540 (kt 540597-2439) en allur ágóði af leigu borðanna mun renna til góðs málefnis.

Borðaskráningu lýkur 27. nóvember.

Foreldrafélag Álftanesskóla og hin ýmsu félagasamtök á Álftanesi.