28. ágú. 2013

Aðgerðaáætlun Garðabæjar gegn hávaða

Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða

Aðgerðaáætlun Garðabæjar gegn hávaða

Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC), sem var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005.

Aðgerðaáætlunin er byggð á niðurstöðum kortlagningar hávaða frá árinu 2012, ásamt hávaðakortum sem sýna hljóðstig í 2 m hæð yfir jörðu. Áætlunin hefur það markmið að draga úr hávaða og óæskilegum áhrifum hans.

Aðgerðaáætlunin verður til kynningar í  þjónustuveri Garðabæjar, hér á vef bæjarins og  á vef Umhverfisstofnunar, www.ust.is.

Bæjarbúum og öðrum hagsmunaaðilum er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við áætlunina.  Athugsemdir skulu  berast  til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar fyrir 30. september nk.

Að kynningartíma loknum mun Garðabær taka athugasemdir sem borist hafa til umfjöllunar.  Gert er ráð fyrir því að endanleg áætlun liggi fyrir síðar í haust.

Aðgerðaáætlun_Gbæ_14_08_2013.pdf (pdf-skjal 2 MB)
300 - GB - Yfirlitsmynd - Lden - 2m.pdf(pdf-skjal 4 MB)