Útsvar - liðsmenn óskast í lið Garðabæjar
Auglýst er eftir ábendingum um einstaklinga til að vera í liði Garðabæjar í vetur.
ÚTSVAR – LIÐ GARÐABÆJAR
Spurningaþátturinn Útsvar heldur göngu sína áfram í Sjónvarpinu í vetur með þátttöku sveitarfélaga. Auglýst er eftir ábendingum um einstaklinga, konur og karla, til að vera í liði Garðabæjar í vetur.
Æskilegt er að viðkomandi hafi góða almenna þekkingu og einnig er gott að hafa sérþekkingu á t.d. náttúrufræði, sagnfræði eða fornbókmenntum. Bónus er auðvitað ef viðkomandi kann að leika og/eða giska vel í látbragðsleik.
Ábendingar um nöfn og helstu upplýsingar um hugsanlega keppendur má senda á netfang Garðabæjar gardabaer@gardabaer.is sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Huldu Hauksdóttur upplýsingafulltrúa, hulda@gardabaer.is eða í s. 525 8500.