Mozart við kertaljós
Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í sextán ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.
Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari ásamt góðum gestum, þeim Eydísi Franzdóttur óbóleikara og Einari Jóhannessyni sem leikur á eitt af uppáhaldshljóðfærum Mozarts ” bassetthornið”.
Á efnisskránni í ár eru hinn þekkti Óbókvartett og Kvintettar fyrir klarinettu, bassetthorn og strengi, Kv. 411 og Kv. 580 eftir W. A. Mozart. Einnig eru á efnisskránni Klarinettukvartettar eftir Franz Anton Hoffmeister, samtímamann og góðvin Mozarts.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,
” Í dag er glatt í döprum hjörtum”, sem er úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Tónleikarnir verða sem hér segir: Í Hafnarfjarðarkirkju, föstudagskvöldið 19. desember, Kópavogskirkju, laugardagskvöldið 20. desember, Garðakirkju, sunnudagskvöldið 21. desember og loks í Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudagskvöldið 22. desember.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast allir klukkan 21.00.
Aðgangseyrir er kr. 1500, og kr. 1000 fyrir nemendur og eldri borgara. Frítt er inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.