20. nóv. 2008

Sparifatasöfnun

Laugardaginn 22. nóvember stendur Fatasöfnun Rauða kross Íslands fyrir sparifatasöfnun í samvinnu við deildir Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu.


Rauði krossinn leitar til almennings um að gefa vel með farinn sparifatnað fyrir börn og fullorðna í sérstakri sparifatasöfnun laugardaginn 22. nóvember. Með því að gefa í söfnun Rauða krossins er hægt að veita fjölskyldum og einstaklingum tækifæri til að eignast spariföt fyrir jólin í fataúthlutun félagsins eða fá þau á hagstæðu verði í verslunum Rauða krossins.

Rauði krossinn hvetur alla til að kíkja í skápana og finna föt sem ekki eru lengur í notkun en gætu öðlast nýtt líf hjá nýjum eiganda.

Tekið verður á móti sparifatnaðinum á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 11–15.

Á höfuðborgarsvæðinu:

Laugavegi 116, gengið inn Grettisgötu megin
Vífilfell hf. Stuðlahálsi 1- inngangur við hlið hússins (verksmiðjumegin)
Hjólhýsi Rauða krossins staðsett við Menningarmiðstöðina Gerðuberg
Hafnarfjörður, Strandgötu 24 - inngangur frá Fjarðargötu
Kópavogur, Hamraborg 11
Garðabær, Hrísmóum 4, Garðatorgi
Álftanes, Haukshúsið á Álftanesi
Mosfellsbær, Þverholti 7

Fataúthlutun á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Rauða kross búðinni að Laugavegi 116 í Reykjavík á miðvikudögum milli kl. 10 og 14. Úthlutun á sparifötunum hefst miðvikudaginn 26. nóvember.

Verslanir Rauða krossins eru að Laugavegi 12 og Laugavegi 116 Reykjavík og Strandgötu 24 Hafnarfirði.