30. sep. 2022

Samskiptastjóri Garðabæjar

Garðabær leitar að öflugum, drífandi og framsæknum einstaklingi með brennandi áhuga á samskiptum í starf samskiptastjóra.

Í starfinu felst m.a. upplýsingagjöf til íbúa, starfsmanna og annarra þeirra aðila sem sveitarfélagið er í samskiptum við. Helstu markmið starfsins eru að efla almannatengsl, samskiptastjórnun, traust og orðspor, ásamt því að auka sýnileika og fanga sérstöðu bæjarins.

Starf samskiptastjóra heyrir undir bæjarritara en viðkomandi mun einnig starfa náið með bæjarstjóra og öðrum stjórnendum sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð, innleiðing og gerð samskiptaáætlunar.
  • Almannatengsl, fjölmiðlasamskipti og vöktun.
  • Umsjón með kynningar- og útgáfumálum.
  • Ritstjórn, frétta- og greinaskrif og dagleg umsjón með samfélagsmiðlum og fréttabréfum.
  • Skipulagning viðburða og opinna funda á vegum bæjarins.
  • Upplýsingamiðlun til starfsmanna, viðskiptavina og annarra hagaðila.
  • Ráðgjöf og aðstoð með vefsíðum stofnana bæjarins.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Marktæk reynsla á sviði samskipta og miðlun upplýsinga þar með talið reynsla af samskiptum við fjölmiðla.
  • Frumkvæði, drifkraftur og brennandi áhugi á samfélagsmálum.
  • Framúrskarandi samskipta- og miðlunarfærni.
  • Geta til að vinna hratt og undir álagi.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Reynsla af notkun samfélagsmiðla í starfi mikilvæg.
  • Rík samskiptafærni og þjónustulund.
  • Skipulagshæfni, sveigjanleiki og ögun í vinnubrögðum.
  • Reynsla af verkefnastjórnun kostur.


Garðabær er vaxandi samfélag í mikilli ​​​​​​​uppbyggingu þar sem lífsgæði og náttúrugæði fara saman. Hjá Garðabæ starfar samhentur hópur stjórnenda og starfsmanna með mikinn metnað til að veita íbúum framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum og auðga mannlíf og bæjarbrag.

Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2022.

Við hvetjum metnaðarfulla einstaklinga til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að sinna starfi sviðsstjóra.

Ráðningarfyrirtækið Vinnvinn hefur umsjón með umsóknum í starf samskiptastóra Garðabæjar. 
Sjá auglýsingu um starfið hér á vef Vinnvinn þar sem einnig er hægt að senda inn umsókn um starfið. 

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ( audur@vinnvinn.is ) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).