20. apr. 2022

Skólamálsverðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2022-2025

Garðabær óskar eftir tilboðum í framleiðslu og framreiðslu á mat fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar.

Garðabær óskar eftir tilboðum í framleiðslu og framreiðslu á mat fyrir grunn- og leikskóla Garðabæjar.

Um er að ræða 5 grunnskóla, 3 leikskóla og einn grunn- og leikskóla, alls með um 2600 nemendur. Hægt er að gera tilboð í einn eða fleiri skóla.

Útboðsgögn er hægt að nálgast endurgjaldslaust á vef Garðabæjar - smellið hér til að nálgast auglýsingu þar sem þarf að skrá netfang til að sækja útboðsgögnin.

Tilboð skal afhenda í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, fyrir kl. 14:00 föstudaginn 27. maí nk.

Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar