24. sep. 2020

Styrkir vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Garðabær vekur athygli á möguleika fatlaðs fólks sem þarfnast sértæks stuðnings vegna fötlunar sinnar til að sækja um styrki skv. 25. grein laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. 

Opið er fyrir umsóknir frá 1. október til og með 31. október 2020. 
Rafræn umsóknareyðublöð eru á Mínum Garðabæ. (Undir umsóknir og 05. Félagsþjónusta)

Fatlað fólk getur sótt um eftirfarandi aðstoð vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar:
1. Styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
2. Styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.

Forsendur fyrir styrknum eru að eiga lögheimili í Garðabæ, hafa náð 18 ára aldri og vera með varanlegt örorkumat. Hámarksstyrkur til umsækjanda er 65.000 kr.


Nánari upplýsingar veitir Pála Marie Einarsdóttir umsjónarþroskaþjálfi, netfang: palaei@gardabaer.is