31. maí 2022

Sundlaugin í Ásgarði lokuð vegna þrifa og viðhalds

Uppfært - Sundlaugin í Ásgarði verður lokuð frá 6. júní vegna þrifa á laugarkerjum og smáviðhalds í búningsklefum. Stefnt er að opnun þriðjudaginn 14. júní nk.

  • Ásgarðslaug
    Ásgarðslaug

UPPFÆRT
Sundlaugin í Ásgarði verður lokuð frá 6. júní vegna þrifa á laugarkerjum og smáviðhalds í búningsklefum. Stefnt er að opnun þriðjudaginn 14. júní nk.

Byrjað verður að hleypa úr stóru lauginni 6. júní, en það tekur 2 sólarhringa, laugin þrifin ásamt bökkum og rennum. Áfylling tekur 2 sólarhringa og upphitun vatnsins í 29°C tekur um 2 sólarhringa í viðbót. 

Allar setlaugar (heitir og kaldir pottar) verða tæmdar og þrifnar sérstaklega. Styttri tíma tekur að koma þeim í full afköst og rétt hitastig aftur.

Farið verður yfir búningsklefa, loftræsistokka, gufubað og sturtur auk annars smá viðhalds meðan á lokun stendur.

Sundlaugagestir eru beðnir velvirðingar á þessu og bent á að allir sundmiðar eru gildir í laugina okkar á Álftanesi.