19. apr. 2021

Vegavinna - þrengingar á Hafnarfjarðarvegi

Fimmtudaginn 22. apríl og föstudaginn 23. apríl verður þrengt að umferð og akrein fækkað á dagtíma.

Vegna vinnu við Hafnarfjarðarveg í Garðabæ er nauðsynlegt að loka akreinum á meðan vinna stendur yfir.
Fimmtudaginn 22. apríl og föstudaginn 23. apríl verður þrengt að umferð og akrein fækkað á dagtíma.
Ökumenn eru beðnir að aka varlega og virða merkingar á vinnusvæðinu.