Vetrarbraut lokuð að hluta
Loka þarf hluta Vetrarbrautar frá Hnoðraholtsbraut að Miðgarði, fjölnota íþróttahúsinu, tímabundið þriðjudaginn 8. mars vegna vatnsflaums fyrir utan íþróttahúsið. Aðkoma að Hnoðraholti er í gegnum undirgöng á Hnoðraholtsbraut.
-
Lokun hluta Vetrarbrautar - þar sem er rauðmerkt frá Hnoðraholtsbraut
Loka þarf hluta Vetrarbrautar frá Hnoðraholtsbraut að Miðgarði, fjölnota íþróttahúsinu, tímabundið þriðjudaginn 8. mars vegna vatnsflaums fyrir utan íþróttahúsið. Verið er að vinna í að koma vatninu í burtu.
Vetrarbraut er áfram opin frá Vífilsstaðavegi að Miðgarði. Einnig er Hnoðraholtsbraut opin og aðkoma að Hnoðraholti um undirgöng.